Ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið
Um ráðstefnuna
Fyrsta ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið var haldin á Akureyri árið 2007. Þóroddur Bjarnason skipulagði ráðstefnuna sem náði strax góðri kjölfestu hjá íslensku félagsvísindafólki.
Ráðstefnan hefur verið haldin árlega eftir það fyrir utan hlé vegna COVID. Á þessum næstum 20 árum hefur ráðstefnan verið haldin á Akureyri, Bifröst/Borgernesi, að Hólum, á Ísafirði og á Höfn í Hornafirði, alls 17 sinnum. Næsta ráðstefna, sú 189. verður haldin á Háskólasetri Vestfjarða, Ísafirði vorið 2027. Nákvæmari tímasetning verður kynnt síðar.
Stjórn
Ráðstefnan er ekki með formlega stjórn. Þóroddur Bjarnason er guðfaðir ráðstefnunnar. Stefán Hrafn Jónsson er vefstjóri. Ráðstefnunni er stýrt af starfsfólki háskólaseturs eða háskóla hverju sinni í góðu samstarfi við velunnara ráðstefnunnar.
Eigi ráðstefnugestir myndir frá fyrri ráðstefnum eru þær kærkomnar í safnið.